Austfjarðatröllið hefur innreið sína



May 24, 2006
Hvur röndóttur

Jæja,

Fyrst konan er komin með blogg, þá verð ég eiginlega að fara að verða duglegri við þetta.

Helst í fréttum: Við fundum íbúð í Hafnarfirði, og ég er um það bil að festa kaup á henni, á bara eftir að skrifa undir snepilinn. Annars er allt gott að frétta af familíunni.

Og svo er daman litla komin með nýja síðu.

Lifið heil


May 5, 2006
Stutt og hnitmiðað

Búið að vera gaman undanfarið:

Erum í bænum að leita að íbúð.

Heiður dafnar vel.

Nýjar myndir á síðunni hennar.

Njótið vel.

 


April 25, 2006
Upptekinn


March 9, 2006
Að vera.....

Á þessum síðustu og verstu tímum er jú nauðsynlegt að koma barninu sínu inn á vefinn, og til þess eru notaðar svokallaðar barnalandssíður.

Fyrir algera tilviljun er nú komin upp slík síða fyrir dóttur mína.

Linkur hér til hliðar.

 


March 8, 2006
Orðið er......

Jæja.....

Þá er daman komin með nafn, og hefur haft undanfarinn sólarhring eða svo til að venjast því.

Heiður Ösp Ingvarsdóttir. Leggið það á minnið. Hún verður forseti.

Lifið heil.

Big Daddy


March 4, 2006
Mynd


March 3, 2006
Fjörið búið, en er samt bara rétt að byrja

Já......Þetta hafðist.

Jæja, þá er þetta afstaðið. Fædd er í heiminn litla Ingvarsdóttir, tekin með keisara kl. 9.49 í morgun. Þetta gekk alveg eins og í sögu, ég fékk ekki að vera inni á meðan verið var að deyfa, en svo var kallað á mig, ég settist inn á skurðstofuna, skurðlæknirinn potaði aðeins í bumbu til að tékka á deyfingunni, og vatt sér svo bara í þetta. 5 mínútum seinna flaug upp barn með tilheyrandi látum, og eftir smá skoðun var ég kallaður til að klippa á naflastrenginn.
Hélt svo á henni meðan verið var að byrja að sauma Petru saman, og ég er ekki frá því að hún sé með skapferlið hans pabba síns.....sem kom í ljós síðar, enda varð ég bara reiður ef ég fékk ekki nóg að éta, einkum þegar ég var á þessum aldri.
 
Petru líður bara nokkuð vel, og með þessu áframhaldi verður hún útskrifuð á mánudag, ef allt gengur að óskum. Nú getið þið farið að veðja um nafnið...... :þ
 
Stúlkan þykir bara nokkuð snoppufríð, efriparturinn á andlitinu sver sig í mína föðurætt, einkum sterklegar augabrúnir, sem og augnsvipurinn. Neðriparturinn er hinsvegar eins og klipptur neðan af yngri systur Petru, þ.a. þetta er jöfn og góð skipting.
 
[Glöggir lesendur sjá að þetta er orðréttur fjöldapósturinn sem ég sendi áðan]
 
Ég er alveg gjörsamlega búinn eftir daginn, alsæll, en gjörsamlega búinn. Svo búinn að ég hef ekki nennu í að setja inn myndir alveg strax. Svo finn ég ekki bévítans leiðsluna í myndavélina, þarf að redda annarri á morgun.
 
Lifið heil
 
Big Daddy
 

February 25, 2006
Biðin langa

Að venju er ég latur, einkum við að blogga. Enda hef ég kannski um nóg annað að hugsa þessa dagana, barn að koma eftir innan við viku, og í nógu að súast. Er í góðu yfirlæti hjá tengdó á Álftanesinu.

Á fimmtudaginn keyrði ég suður, og bauð með mér vinnufélaga mínum sem er af erlendu bergi brotinn, og langaði að sjá meira af landinu en Reykjavík og Reyðarfjörð. Ferðin sóttist nokkuð vel, og keyrslan tók í það heila um 7 tíma plús nokkur stopp á leiðinni, t.a.m. við Jökulsárlón og fleiri skemmtilegum stöðum.

Gærdagurinn fór í ýmsa snúninga í bænum. Byrjaði á að sækja Björninn út á völl og eftir mikla leit að hans ektafrú fannst hún loks í Kringlunni. Merkilegt að konur sem segjast ekki rata neitt í henni Reykjavík, rata samt sem áður í Kringluna.

Annars er allt í góðum gír hvað framhaldið varðar, fylgist vel með síðunni í byrjun næsta mánaðar.

Lifið heil,

Ingvar "Big daddy" Skúlason


February 1, 2006
Mikið að gera

Undanfarið hefur verið alltof mikið að gera í vinnu, einkalífi, og félagslífi til þess að blogga.

Ég var eitthvað að fikta við linkalistann, uppfæra þá sem skipta um blogg eins og sokka, og henda þeim út sem eru hættir þessari vitleysu. Ekkert persónulegt.

Annars gengur allt vel, jól og áramót gengu stórslysalaust fyrir sig, sem og undanfarinn mánuður.

Að lokum: Helvíti er frosið, finnur.tk er hættur að blogga.

Kv. Ingvar


December 23, 2005
Jólablögg

Jæja,

Ekki hefur farið mikið fyrir bloggum frá mér undanfarið, og nú hef ég alls enga afsökun, aðra en þá að ég hef verið húðlatur undanfarið eins og svo oft áður.

Annars er það af mér og mínum að frétta að barni heilsast vel í móðurkviði, og veldur móður sinni ómældri ánægju með hvers kyns ólátum þar inni. Mun það væntanlega halda áfram svona fram undir miðjan mars. Ég er sjálfur búinn að vera í jólafríi alllengi, eða síðan 14. des, og hef aftur störf á nýju ári, strax 2. jan.

Jólafríið hefur verið nýtt í ýmislegt, þó að nokkur tími hafi farið í að rifja upp gömul kynni við tölvuleiki sem ég var því sem næst hættur að spila, móður minni til nokkurrar gremju. Einnig hefur verið farið í körfubolta tvisvar, og hefði þess vegna mátt vera oftar.

Stefnt er að því að fá sér öl á annan í jólum, en vonandi í hófi þó. Hvað gert verður um áramótin er ekki vitað á þessari stundu.

Ég óska lesendum hér með gleðilegra jóla, farsæls nýs árs, og þar fram eftir götunum, þ.e.a.s. ef einhver les þetta.

Lifið heil....

I. Sk.


Previous Page Next Page






   

Survey4Life
Ingvar


Fjölskyldan
(Ég á mjög tölvuvædda fjölskyldu)
Heiður Ösp
Petra ofurmamma
Mamma
Unnur frænka
Kristján Ketill
Elfar
Hafþórarinsson

Tengdafjölskyldan
Sonja mágkona
Silja Mágkona
Davíð mágur

Vinir
Finnur Torfi
G. Þorkell
Haffi Snjólfur
Stuðmundur 2500
Einar Hroðbjartur
Urður Snædal
Friðriksson Frammari
Einar Rauði
Þóra Elísabet
Lubba
Stebbi Ara
Esprelloz
Freysi
Þórunn soðlappi
Sigmar Bóndi
Stefán Bogi
Gutti


Fyrrverandi vinnufélagar
Seli Ben
Steinþór pretty boy
Gretzky
Hjössi


Fólk sem ég þekki ekki
Anna