December 5, 2003
Það hefur komið upp sú hugmynd að fara og taka hús á bræðrunum Þórarinsson, og spila Risk. Ein skaðræðishængur er á þessu plani, en það er sú staðreynd að við eigum ekki Risk og spil þeirra bræðra er staðsett hjá V. McÞórarinsson af Reykjavík. Bróðir vor lagði í mikla hættuför til að útvega spilið góða en allt kom fyrir ekki. Hann komst þó til baka án teljandi meiðsla eða fjárútláta.
Við svo búið má ekki standa, og auglýsum við bræður hér með eftir lítið notuðu Riski, til kaups eða gjafar. Það eru nú einu sinni að koma jól.
Posted at 20:23 by
Austfjarðatröllið
December 4, 2003
Var að sörfa og sá þá að hún Skotta hafði linkað á mig, og að launum fær hún að sjálfsögðu link til baka. Þá er heildarfjöldi linka kominn í 19.
Posted at 23:29 by
Austfjarðatröllið
Ég ítreka hér með áskorun á S.B. Sveinsson að tæknivæða sig og byrja að blogga. Þrátt fyrir að blogga ekki er hann með duglegri mönnum við að kvitta fyrir komu sína, og er það vel. Hins vegar verður hann seint sakaður um munnræpu, miðað við þessti kvitt sín hér á síðunni......ég veit hins vegar betur.
Hef ekkert ritað í tvo daga. Ég hafði hreinlega ekkert að segja, frekar en núna.
Jón Kolbeinn hefur verið svo vænn að linka á mig og því er ekki nema sjálfsagt að linka á hann til baka. Annars þekki ég manninn ósköp takmarkað, hef samt heyrt vel af honum látið.
Posted at 23:08 by
Austfjarðatröllið
December 1, 2003
Það var hálka á leiðinni uppeftir áðan. Hélt mig samt að mestu innan vegar. Ég þarf virkilega að fara að kaupa skaðræðis nagladekk, sem koma örugglega til með að endast tvöfalt lengur en bílskrjóðurinn minn.
Hafsteinn fór helvíti illa með mig í dag. Við vorum að afgreiða parket og hann hlóð á mig ca. 11 fermetrum af parketi sem ég fór með út í bíl hjá ágætri konu. Á miðri leið fóru að koma brestir í bakið, og er ég núna svo slæmur að ég get mig varla hreyft.
Posted at 21:42 by
Austfjarðatröllið
November 30, 2003
Djöfull er ég ekki búinn að gera neitt af viti í dag. Ég er samt nokkuð ánægður með að hafa ekki brotið nein bein í boltanum í gær, hvorki mín eigin né annarra.
Posted at 23:26 by
Austfjarðatröllið
November 29, 2003
Að klóra sér í rassinum er mjög vanmetin iðja
Það kyngdi niður snjó á Egilsstöðum í dag og á tímabili var ég ekki viss um að komast heim eftir vinnudaginn, þar sem ég er á fólksbíl og ekki á nagladekkjum. Sá ótti hvarf þegar ég var rétt kominn út úr bænum, þar sem það virtist bara snjóa á Egilsstöðum. Þarf endilaga að fara kaupa nagladekk.
Var að fá upphring frá manni sem skoraði á mig í fótbolta. Stefni á að brjóta innan við fimm bein, mín eigin meðtalin. Geldingar teljast ekki sem beinbrot er það nokkuð?
Posted at 20:21 by
Austfjarðatröllið
November 27, 2003
Ég hef fengið gríðarleg viðbrögð við síðasta pósti og í ljósi þess er einfalt að reikna út að 100. linkurinn kemur eftir 83 daga, sem er vel innan marka. Eina skilyrðið fyrir link er að viðkomandi linki á mig. Þeir eru nú þegar orðnir 17. Nýjustu viðbæturnar er annars vegar hún Anna sem er drottning kommentanna, og er manna duglegust að kommenta á þeim síðum sem hún fer inn á, og hins vegar Unnur frænka mín sem linkaði víst á mig fyrir löngu en ég komst ekki að því fyrr en núna.
Ég hvet alla sem lesa síðuna til að linka á mig, eða að minnsta kosti að skilja eftir komment.
Posted at 22:19 by
Austfjarðatröllið
November 26, 2003
Ákvað að gjalda líku líkt og linka á hann Mána, en við spiluðum saman körfubolta á yngri árum að mig minnir, þó að við höfum ekki hist í fjöldamörg ár svo neinu nemi. Þá er fjöldi manns sem ég þekki varla neitt búinn að linka á mig (Fjöldi = 2). Nú bíð ég bara eftir því að fólk sem ég þekki ekki neitt linki á mig í stórum stíl. Ég stefni á hundraðasta linkinn 1.mars 2004.
GFR og Tókinn hafa gerst svo djarfir að halda því fram að ég sé meira sexy án skeggsins. Þeir eru náttúrlega karlmenn, og vilja því hefta þá samkeppni sem ég og skeggið mitt veitum þeim. Hef því ákveðið að hafa ummæli þeirra að engu og halda skeggsöfnun ótrauður áfram.
Posted at 22:31 by
Austfjarðatröllið
November 24, 2003
Ég gleymdi að minnast á það í gær að á laugardagskvöldið fékk rakvélin mín æðiskast og rakaði einum of mikið vinstra megin. Gripið var til örþrifaráða, og fékk rakvélin einnig frjálsar hendur hægra megin. Þetta hafði þau áhrif að kvenhylli mín var lítil sem engin á ballinu, enda er það alkunna að mestallur kynþokki minn var fólginn í skegginu. Við svo búið má ekki standa, og er ég byrjaður að safna aftur af miklu kappi. Það ætti að verða komið í samt lag eftir um tvær vikur.
Ef einhverjar konur eru á öðru máli varðandi skeggið, þá endilega hafiði samband innan tveggja vikna. Hver veit hvenær svona tækifæri býðst aftur.
Posted at 22:11 by
Austfjarðatröllið
November 23, 2003
Ég er með athyglisverða þynnku akkurat núna, ég finn ekkert sérstaklega fyrir henni, en ég veit að hún er þarna. Ég er allavega ekki búinn að koma neinu í verk í dag af viti. Ég fór sem sagt og fékk mér í glas í gær, og gerði nákvæmlega ekkert af viti þá heldur. Ég held að þetta sé að snúast upp í vana.
Heyrði orðróm þess efnis að fólk sem þekkir mig ekki neitt sé farið að linka á mig. Þar erum við einkum að tala um hana Þóru Magneu, betur þekkt sem Frú Þorkell. Í ljósi þess er ekki nema sjálfsagt að svara í sömu mynt, og linka á hana til baka, þrátt fyrir að ég þekki hana lítið sem ekkert.
Posted at 21:07 by
Austfjarðatröllið