|
|
 |
 |
November 22, 2003
Dagurinn byrjaði á að ég fór í Egilsstaði að vinna og stoppaði í söluskálanum. Þegar ég var að fara renndi bíll upp að skálanum og í aftursætinu sat drengur sem var klæddur í jólasveinabúning. Það er nóvember for crying outloud. Skreytingar í búðum eru í lagi út af fyrir sig, en að klæða sig upp í jólasveinabúning í nóvember er farið að jaðra við geðveiki.
Ég ætti kannski ekki að segja mikið því ég sel þessa búninga í búðinni.
Annað sem kom fyrir í dag var að í búðina kom fjögurra manna fjölskylda sem var öll klædd í eins íþróttagalla. Ég veit ekki með ykkur en svona lagað veldur mér hálfgerðum ónotum.
Posted at 15:52 by Austfjarðatröllið
November 21, 2003
Ég bít ekki....allavega ekki í gegnum netið.
Voða eru menn latir að kvitta fyrir sig. Fyrir utan minn geðveika aðdáanda þá hefur enginn skrifað staf á þessa síðu síðan S.B. Sveinsson kvittaði 19. nóvember kl. 12:07 PM. Reyndar er mig farið að gruna vissa aðila um græsku, sem ættu að vera varir um sig á næstunni. Allavega þykir mér gaman að fá smá svona feedback um hvort ég er yfirhöfuð eitthvað fyndinn eða beittur á þessari blessuðu síðu.
Hér er svo einn Yo' momma brandari, bara svo það sé eitthvað fyndið í þessum pósti.
Yo' momma so fat she had her wedding pictur taken from a satellite!!!
Anyway, ég er latur, svangur, syfjaður og með BFG, þannig að ég hætti núna.
kv. Ingvar
P.S. Ef þú veist ekki hvað BFG er þá er sennilega betra að þú vitir það ekki.
Posted at 19:28 by Austfjarðatröllið
November 20, 2003
Ég bætti við henni Þóru nágranna mínum og næstum því frænku minni. Hún bætist því við þann hóp eðalmenna sem fyrir eru á linkalistanum.
Heyrst hefur að Ingólfur Friðriksson hafi lent upp á kant við flokkinn og fari nú huldu höfði af ótta við pólitískar ofsóknir. Stafar þetta sennilega af ummælum á bloggsíðu hans þar sem gefið er í skyn að Rómverjar séu klikk. Taldi flokkurinn þetta vera dulin skilaboð þess efnis að Friðriksson sé andvígur ráðningu ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo að Kárahnúkaverkefninu. Vinstri grænir hafa lýst því yfir að hann sé velkominn í þeirra raðir.
Ég mæli samt með að Ingólfur stofni sinn eigin flokk, þá myndi ég jafnvel kjósa hann.
Posted at 22:17 by Austfjarðatröllið
November 19, 2003
Lýst er eftir Ingólfi Friðrikssyni 22 ára. Ingólfur er Framsóknarmaður, meðalhávaxinn og þéttur á velli. Síðast spurðist til hans 10. nóvember síðastliðinn er hann sótti kennslustund hjá Cedric Viale, í Háskólanum á Akureyri. Þeir sem telja sig hafa fundið Ingólf skulu skila honum sem fyrst á skrifstofu Framsóknarflokksins.
Posted at 19:47 by Austfjarðatröllið
November 18, 2003
Bjúgum:
Óhollur og ódýr matur sem gefur ameríska ruslfæðinu ekkert eftir.
Eivöru Pálsdóttur:
Glæsileg söngkona með frábæra rödd og gríðarlega útgeislun á sviði.
Arnaldi Indriðasyni:
Afbragðs rithöfundur, þarfnast ekki frekari skýringa.
Góðum hægðum:
Fátt kemur manni í betra skap en að hafa góðar hægðir eftir langan og erfiðan vinnudag.
Lord of the rings:
Þarf ekki að segja neitt hérna.
Að þið kvittið fyrir komu ykkar:
kv Ingvar
Posted at 23:20 by Austfjarðatröllið
November 17, 2003
Athugulir lesendur hafa kannski tekið eftir því að upp á síðkastið hefur einhver glettinn einstaklingur sett inn klámfengin skilaboð á spjallborðið. Ég hef eytt þeim út jafnóðum þar sem mér hugnast ekki þessi aðferð til viðreynslu, og að auki þá hefur viðkomandi þann leiða vana að linka á ónefnda klámsíðu með. Ef einhver vill auglýsa á síðunni minni þá er það sjálfsagt mál, ef fyrir fæst einhvers konar greiðsla. Endaþarmsmök koma ekki til greina sem greiðsla, því þá væri ég hórkarl. Viðkomandi er vinsamlegast beðinn um að hætta þessu. Ég er að biðja fallega núna, en næstu aðgerðir verða ekki eins fallegar.
Posted at 22:04 by Austfjarðatröllið
November 16, 2003
Gríðarlega viðburðaríkur dagur
Í gærkvöldi kom upp sú hugmynd að taka hús á þeim bræðrum E. og H. Þórarinssonum og spila Risk fram á nótt. Við bróðir minn og Óli vinur hans fórum, en þegar á hólminn var komið fannst ekki spilið. Nú voru góð ráð dýr. E. Þórarinsson hringdi í bróður sinn V. McÞórarinsson og þá kom á daginn að hann hafði tekið spilið með sér til höfuðstaðarins. Þá var ákveðið að spila bara Monopoly í staðinn, og urðu lyktir þannig að kvikindið hann bróðir minn fór með sigur af hólmi. Eftir skemmtilegt kvöld var haldið heim og þar sofnaði ég yfir myndinni Dead Presidents.
Meðan ég man, þá hefur G. Þorkell náð sér að fullu eftir harða baráttu við Júgurbólgu. Til hamingju Þorkell.
Posted at 16:48 by Austfjarðatröllið
November 15, 2003
Ég sé að Bloggleti mín er smitandi, af öllum þeim sem ég linka á höfðu aðeins 4 bloggað síðan í gær, þar af höfðu bæði mamma og afi bloggað. Hinir tveir voru Finnur.tk og Einar Rauði. Af hinum er það að segja að G. Þorkell er að öllum líkindum látinn, sennilega úr svartadauða eða júgurbólgu, þar sem hann hefur ekki bloggað síðustu vikuna. Er honum bent á að blogga til að leiðrétta þennan misskilning. Hafþór hefur ekki ritað neitt síðustu tvo daga, en það sem verra er þá á hann eftir að linka á mig sem er ávísun á einhvern hræðilegan sjúkdóm, s.s. miltisbrand eða gin- og klaufaveiki. Þess ber að geta að G. Þorkell hefur ekki linkað á mig heldur. Maggi Tóka ritaði reyndar aðfaranótt föstudags, þannig að hann er innan letimarka. Hann hefur hins vegar ekki linkað á mig, þannig að hann á von á sullaveiki einhvern næstu daga. Bylgja hefur hinsvegar linkað á mig, en hefur ekki skrifað síðustu tvo daga sem er undarlegt því hún hefur þjáðst af munnræpu frá upphafi vega. Kannski læknaðist hún við að linka á mig, hver veit. Tunguvegsbúar virðast hafa týnt öllum sínum linkum, og hafa eins og Tókastaðafíflið ekki skrifað síðan á aðfaranótt föstudags. Einar Hroðalegi er búinn að linka og ritaði reyndar í gærmorgun, þ.a. hann, af öllum mönnum, er innan 36 tíma letimarkanna. Urður Snædal hefur ekki skrifað í 2 sólarhringa, og Friðriksson er hrikalega nálægt því að verða úrskurðaður látinn, þar sem hann hefur ekki skrifað í 5 daga. Þau hafa hins vegar bæði linkað.
Það er von mín að til að forða því að farsóttir breiðist út um netið muni menn linka á mig í stórum stíl, og munnræpan grasseri eins og áður var.
Kveðja,
Hr. Pungvar sóttvarnalæknir
Posted at 16:33 by Austfjarðatröllið
November 13, 2003
Ég er einstaklega latur í dag þ.a. ég nenni ekki að skrifa. Bæti samt við eins og einum link, á hann Einar Rauða, sem er svoldið skrítinn en samt ágætis strákur inn við beinið.
Posted at 23:30 by Austfjarðatröllið
November 12, 2003
Ég stend við það sem ég segi
Nú er það svart. Eftir nýlegan reiðilestur hinnar dýrslega fögru Bylgju (sjá comment hér að neðan) sé ég mig knúinn til að rökstyðja mál mitt eilítið. Upprunalega ástæðan fyrir þessari nafngift er hér að neðan, þó að fleiri ástæður liggi vissulega að baki. Til dæmis þá kýs Bylgja gjarnan að kenna sig við flesk eða afleiddar afurðir (Beikonschnitzel) og því hefur hún sjálf tengt sig við dýraríkið með afgerandi hætti. Í annars stað hefur Bylgja stundum kennt vini og kunningja, einkum karlkyns, við dýraríkið, nægir þar að nefna mig sjálfan, sem kenndur er við Bigfoot á síðunni hennar Bylgju, og einnig hann Gutta sem er kallaður sjórotta á sömu síðu, svo einhver dæmi séu tekin. Fleiri ástæður liggja sjálfsagt að baki, meðvitaðar eins og mín meðfædda stríðni, og ómeðvitaðar sjálfsagt líka, þó að ég viti ekki hverjar þær eru því annars væru þær ekki ómeðvitaðar. Ef Bylgja heldur að ég breyti linknum út af skitnu þriggja lína kommenti, og minniháttar uppnefningum, boy is she wrong. Ég held fast vit mitt.
Posted at 22:17 by Austfjarðatröllið
|
|
|