November 10, 2003
Bætti inn tveimur nýjum linkum, annar er á fyrrum sambýliskonu mína, hana Urði Snædal, sem er mjög opinská um hluti sem maður þarf VIRKILEGA EKKI AÐ VITA, s.s. nákvæmar lýsingar á því hvernig maður stundar kynlíf á túr. EECH!
Hinn maðurinn er Farmsóknarhundurinn Ingólfur Friðriksson, betur þekktur sem Friðriksson, sem er nú bara ágætis drengur þó að genetískt eðli hans hafi afvegaleitt hann hvað varðar pólitík.
Posted at 22:29 by
Austfjarðatröllið
Ég var með eins og hálfs tíma spurningaliðsæfingu í kvöld. Þetta er helvíti góður hópur sem ég er með þarna, þrátt fyrir að hann innihaldi a.m.k. tvær bindindismanneskjur. Svo maður vitni í hin merka mann Björn Vigfússon, þá er "sigur blanda af metnaði og kæruleysi". Ég held að þetta lið sé með betri metnað en við höfðum á sínum tíma, en þau komast ekki með tærnar þar sem við höfum hælana hvað varðar kæruleysið. Ef einhver finnur hjá sér skyndilega þörf til að semja nokkrar spurningar, þá er ykkur guðvelkomið að senda mér þær.
Posted at 21:43 by
Austfjarðatröllið
November 9, 2003
Ég bætti Einar Hr. við linkana. Einar er mikill snillingur, og er ein aðalsprautan í þeirri ágætu hljómsveit Hroðmör. Hann er hins vegar ekki þekktur fyrir neinn ógurlegan dugnað, og síst af öllu í blogginu, þ.a. hann mun sennilega ekki vera sískrifandi þarna. Einnig er litasamsetningin á síðunni mjög augnpínandi.
Posted at 23:16 by
Austfjarðatröllið
Til hamingju með afmælið Gunnar
Ég fór í afmæli áðan hjá stórvini mínum honum Gunnari K Jónssyni. Þar voru á borðum stórglæsilegar veitingar, og er það nú svo að ég hreinlega stend á blístri. Ég kann honum og foreldrum hans bestu þakkir fyrir. Nú er það svo að ég stóð við það sem ég sagði í gær um að gera nákvæmlega ekki neitt. Steinþór vinur minn kíkti reyndar í heimsókn, og horfðum á Amores Perros í Ríkiskassanum. Fantagóð mynd.
Posted at 19:24 by
Austfjarðatröllið
November 8, 2003
Þreyttur.
Bróðir minn er eitthvað að agítera fyrir frægðarför í Egilsstaði, en ég bara nenni því ekki. Ég væri hins vegar alveg til í að kíkja upp í Skriðuklaustur á lomberkvöld....ef ég kynni lomber. Ég er bara svo þreyttur að ég get ekki einu sinn étið eins og maður. Ég náði bara að klára einn sláturkepp í kvöldmatnum sem hefur ekki gerst síðan ég var fjögurra ára. Nei í kvöld er það sjónvarpið sem á hug minn allan.
Posted at 20:33 by
Austfjarðatröllið
Ég bætti við link á blogg Tunguvegs 18, sem Guðmundur/Gummi frá Reykjavík/GFR/Guggur/Stuðmundur/Stuggur/Gimpurinn stendur fyrir að mestu. Þetta ku vera aðal partístaðurinn Í höfuðstaðnum (Ef þú ert 16 ára.).
Posted at 00:13 by
Austfjarðatröllið
November 7, 2003
Þetta var einn sá erfiðasti dagur sem ég hef þurft að vinna, jólavertíðin að byrja, lagerinn fullur af glerkúlum þannig að ef maður rekur sig í eitthvað á eru 70% líkur að það heyrist brothljóð. Allavega, þá þufti ég að vinna til kl. 11 við að binda niður timbrið á planinu af því að það gæti orðið hvasst í nótt. Loksins þegar ég var búinn, þá datt allt í dúnalogn. Týpískt fyrir mig og mína heppni.
Posted at 23:48 by
Austfjarðatröllið
November 6, 2003
Bylgju hefur verið bætt inn á minn fátæklega linkalista. Ástæða þess að ég bendla hana Bylgju blessunina við dýraríkið er sú að eitt sinn fyrir margt löngu birtist einmitt ljósmynd að okkur skötuhjúunum í sorpriti nokkru er nefndist Pési. Myndin var undir yfirskriftinni "Beauty and the Beast"
Go figure....
Posted at 22:36 by
Austfjarðatröllið
Ég hef verið að heyra það upp á síðkastið að ég sé talinn feitur. Þetta hefur reyndar gengið undanfarin 5 ár eða svo. Sá sem hefur gengið hvað harðast fram í þessari gagnrýni er Björninn hann bróðir minn. Gallinn er bara sá að mér finnst ég ekki vera neitt sérstaklega feitur þegar ég lít í spegil. Kannski er ég með svona öfuga anorexíu, "Í hvert skipti sem ég lít í spegil þá finnst ég mér vera grannur". Staðreyndin er samt sú að ef ég er feitur þá er ég alltaf jafnfeitur, þar sem ég er búinn að vera jafnþungur sl. 5 ár.
Maður verður nú að næra sig
Posted at 22:11 by
Austfjarðatröllið
November 5, 2003
Nýtt skemmtiefni á síðunni
Ég ákvað að setja teljara inn á síðuna, þegar ég gáði áðan var hann kominn upp í 2. Ég gladdist mjög við þetta, en svo rann upp fyrir mér að báðir þessir aðilar eru ég sjálfur. Þetta voru mér gríðarleg vonbrigði. Ég hef ákveðið að tíundi gesturinn fái í verðlaun heilar 10 kr. (Póstburðargjald ekki innifalið)
Posted at 21:01 by
Austfjarðatröllið