Entry: Ég stend við það sem ég segi November 12, 2003



Nú er það svart. Eftir nýlegan reiðilestur hinnar dýrslega fögru Bylgju (sjá comment hér að neðan) sé ég mig knúinn til að rökstyðja mál mitt eilítið. Upprunalega ástæðan fyrir þessari nafngift er hér að neðan, þó að fleiri ástæður liggi vissulega að baki. Til dæmis þá kýs Bylgja gjarnan að kenna sig við flesk eða afleiddar afurðir (Beikonschnitzel) og því hefur hún sjálf tengt sig við dýraríkið með afgerandi hætti. Í annars stað hefur Bylgja stundum kennt vini og kunningja, einkum karlkyns, við dýraríkið, nægir þar að nefna mig sjálfan, sem kenndur er við Bigfoot á síðunni hennar Bylgju, og einnig hann Gutta sem er kallaður sjórotta á sömu síðu, svo einhver dæmi séu tekin. Fleiri ástæður liggja sjálfsagt að baki, meðvitaðar eins og mín meðfædda stríðni, og ómeðvitaðar sjálfsagt líka, þó að ég viti ekki hverjar þær eru því annars væru þær ekki ómeðvitaðar. Ef Bylgja heldur að ég breyti linknum út af skitnu þriggja lína kommenti, og minniháttar uppnefningum, boy is she wrong. Ég held fast vit mitt.

   3 comments

Hr. Pungvar
November 13, 2003   11:15 PM PST
 
Bylgja: Ef það eina sem þú getur fundið að þessum pistli er ein skitin stafsetningarvilla, þá verð ég að þykjast harla ánægður.
Bylgja Beikonsnitzel
November 13, 2003   10:23 AM PST
 
vit þitt er ekkert ingvar!!
Mamma þín
November 13, 2003   10:17 AM PST
 
Vit Þitt ? Hvað meinarðu ?

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments