Entry: Ætti maður að byrja á þessari vitleysu aftur? November 21, 2006



Já, það hefur farið eitthvað lítið fyrir mér undanfarna mánuði. Þar er einkum um að kenna (eða þakka), flutningum, námi, fjölskyldulífi, leti, andleysi, tölvuvandræðum, Tony Blair, og grænum baunum, svo eitthvað sé nefnt.

Annars er allt í góðu hér í Hafnarfjörður City. Heiður Ösp dafnar bara vel, þriðja tönnin var að koma í ljós í dag, og það er gríðarlega gaman í sundi. Námið gengur svona þokkalega, þrjú próf búin, eitt eftir, og ég held ég hafi aceað tvö þeirra.

Það er ýmislegt sem ég hef ætlað að blogga um undanfarið, innflytjendamál, bensínverð, daglegt líf fjölskyldumanns í Hafnarfirði, hvernig grænar baunir séu orsök allrar illsku, undirstöðukrafta í þrívíðum grindum, skort á áfengisneyslu, Reykjavíkurhnitakerfið, og margt, margt fleira.

Mikið ógurlega nennti ég því ekki, og nenni ekki að rifja upp hvað mér flaug í hug varðandi þessi málefni. Heimurinn verður þá bara að vera fátækari fyrir vikið.

Þá verður maður að víkja talinu að nýlegri hlutum. Ég seldi bílinn minn í dag og fékk annan uppí. Þar hafiði það.

   2 comments

Mamma
November 22, 2006   08:58 PM PST
 
Ég meina "á hverju"
Mamma
November 22, 2006   08:57 PM PST
 
Ja, hérna ! Það voru aldeilis fréttir. Og æa hverju ekurðu núna ?

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments