|
Jólin hafa aldrei verið í uppáhaldi hjá mér. Ég veit ekki hvers vegna. Ég hafði gaman af þeim sem barn, en þessi áhugi dvínaði þegar ég kom upp á unglingsár. Án þess að ég gangi svo langt að segja að ég hati jólin, þá hefur mér verið fyrirmunað að sjá hvað er svona sérstakt við þetta fyrirbæri. Kannski minnkaði áhuginn í réttu hlutfalli við barnatrúna, eða í öfugu hlutfalli við aldur, þroska og þunglyndi. Sennilega er það blanda af öllu saman. Nú fer að koma að því að maður hætti að upplifa jólin eingöngu í gegnum sjálfan sig, heldur er það önnur manneskja sem er í aðalhlutverki þessi og að öllum líkindum næstu 10-15 jól. Nú ríður því á að fara að reyna að koma sér í löngu gleymt jólaskap. Svo vil ég bara minna á það að jólin eru í desember. Undanfarið hefur borið nokkuð á því að menn hafi gleymt því. Við sem eigum í vandræðum með að koma jólaskapinu í gang, látum það fara heilmikið í taugarnar á okkur hvað fólk byrjar snemma að hlakka til jólanna. Þrátt fyrir allt er allt best í hófi, líka jólin. Já, og einkunnir........10-8-8 Ingvar Grinch
|
| Gamli Blöndós December 2, 2006 05:08 PM PST Sæll. Kóngur. Ert uekkert að fylgjst með þínu svæði. En skreyttu heimilið eins mikið og þú getur, Hlustaðu á Jólalögin hans Ómars til koma þér í gott skap, Ellý og Villi Villi eru líka góð. Kveiktu á kertum. Mikið til af bandarískum jólamyndum mis dramatískar og fyndnar eins og Lampoons christmas vacation og hinar ýmsu útgáfur af Scroots. Farðu í leikfangaverslanir og verslaðu. Lestu um jólasveinana fyrir dömurnar. Sýndu þeirri minni jólasveinana í búðargluggunum sem hreyfast. Drekktu kakó og borðaðu smákökur og étu konfekt. Farðu niðrí bæ með dömurnar á þollák..og svo mætti lengi telja þú ert líklega búinn að kaupa jóladagatal með sukkúlaði og jóladagatalakerti? jæja gangi þér vel en ég veit að þetta er erfitt eftir tveggja ára einangrun austur á Reyðarfirði Bið að heilsa | ||
| Leave a Comment: |